Wednesday, November 30, 2011

Hugmynd að notkun

Ég vona að Herborg mín hafi verið ánægð með gjöfina í dag. Það eru ekki allir sem bera svona en Herborg gerir það svo sannarlega. Svo ætla ég að fá þetta lánað hjá henni þegar ég er búinn að afhjúpa mig.... úps, hér kjaftaði ég af mér!

Hér er frábært video um hvernig nota má þessa litlu gjöf.

Tuesday, November 29, 2011

Lag í lok dags

Textinn í þessu lagi talar nú ekkert sérstaklega til mín en lagið er bara svo fallegt. Ágætt að raula þetta um leið og maður fer út í rökkrið.

Nafnið Herborg

Nafnið kemur fyrir í riddarasögum en Herborg hét kona Sigurðar Úlfssonar jarls samkvæmt Samsons sögu fagra. Heimildir eru um nafnið hér á landi frá því á 17. öld. Það kemur fyrir í nafnatali séra Odds á Reynivöllum árið 1646. Árið 1703 var það borið af 24 konum, öld síðar af 27 en árið 1910 hétu 44 konur Herborg. Í þjóðskrá 1989 voru 70 konur skráðar með þessu nafni sem einnefni eða fyrra nafni af tveimur en 21 kona að síðara nafni.
Nafnið Herborg hefur verið notað öldum saman í Svíþjóð og er talið tökunafn úr þýsku, í fornháþýsku Heriburg. Það er einnig notað í Noregi.

Herborg giskar

Loksins hef ég náð persónulegu sambandi við Herborgu og fékk hrós fyrir tónlistarsmekkinn! Ég er svo glaður (leynivinur - karlkyns orð) að  henni fellur það sem ég hef sent henni. Svo giskar hún á að ég sé af Engjateigari... það er spurning.

Heims um ból að hætti Tom Waits

Þetta er kannski ekki það jólalegasta en Tom Waits er bara svo svakalega flottur á sinn hrjúfa hátt.

Monday, November 28, 2011

Fyrir þig Herborg

Herborg er...

Þegar ég hugsa um Herborgu dettur mér í hug "sigurvegari" og í framhaldi af því "drottning".

Til hamingju ég!

Ég var ótrúlega heppinn þegar dregið var í leynivina leiknum í vinnunni. Ég dró Herborgu sem er skemmtileg kona og hörku dugleg. Ég hlakka til að gleðja hana í vikunni og vona að hún kunni að meta það sem ég læt mér detta í hug.